Mjöll

Mjöll er 12 km skíðagönguleið um Kjarnaskóg og Naustaborgir

Mjöll er mjúk og góð, nauðsynleg fyrir góða skíðabraut og gerir Kjarnaskóg og nágrenni að draumaveröld. Mjöll á eins og aðrar skíðagöngukeppnir Súlur Vertical rætur sínar að rekja til Hermannsgöngunnar, sem kennd var við íþróttafrömuðinn og skíðaáhugamanninn Hermann Sigtryggsson. 

Brautarlýsing:

Gangan hefst og endar á Kjarnatúni ofan við bílastæðin við Kjarnakot. Trimmbrautinni fylgt réttsælis, svo farið inn á Naustaborgarleið og henni fylgt til norðurs, þarna er mesta hækkunin í brautinni. Eftir um 3,1 km er beygt til vinstri (norðurs) áleiðis að Naustaseli og svo áfram alveg í norðausturhorn Naustaborga. Naustaborgaleið gengin aftur til baka/suðurs þar til komið er að Skjólborg eftir 5,6 km. Þar er haldið til vinstri/suðurs inn á nýlega þægilega leið ofan við tjaldsvæðið og við tekur smá klifur þar sem frisbígolfvöllurinn er þveraður. Síðan gengið um slétt svæði vestan og sunnan við tjaldsvæðið þar til farið er inn á Skógarleið. Þar tekur við rennsli að mestu og komið aftur inn á Trimmbrautina ofan við Sólúrið. Rennt sér niður að Sólúrinu og áfram í sveig niður Kjarnatún í gegnum markið en þá er um 8 km búnir. Haldið áfram út í annan hring sem er um 4 km, sama leið og áður en fyrir klifrið á Naustaborgarleiðinni er beygt til hægri inn á tjaldstæðið við Hamra. Gengið þaðan inn á Skógarleið og svo aftur inn á Trimmbraut ofan við Sólúrið. Rennt sér niður að Sólúrinu og áfram í sveig niður Kjarnatún í mark.

Rástími

 

Innifalið í skráningu:

  • Aðgöngumiði í Skógarböðin á keppnisdegi
  • Súpa að lokinni göngu og pylsur fyrir börnin
  • Drykkir í lokamarki/drykkjarstöð

 

Sérstakir styrktaraðilar Skíðagöngunnar eru